Daglegt Líf
FYRIRHEIT GUÐS ERU HANDA MÉR, 30. nóvember
Syngið Drottni lof pér hans guðhrœddu, vegsamið hans heilaga nafn því að augnablik stendur reiði hans en alla ævi náð hans. Sálm. 30, 5. 6 DL 340.1
Það væri sama og að taka sólina af himninum að taka fyrirheit Guðs úr orði hans. Það væri ekkert til þess að gleðja okkur. Guð hefur sett fyrirheit sin í orð sitt til þess að leiða okkur til trúar á hann. Í þessum fyrirheitum dregur hann til hliðar tjaldið frá eilífðinni og veitir okkur sem snöggvast að sjá hinn eilífa og mikla dýrðarþunga sem bíður þess sem sigrar. Við skulum því hvíla í Guði. Við skulum lofa hann fyrir að gefa okkur svo dásamlega opinberun á tilgangi hans. DL 340.2
Meðfram allri vegferð okkar gróðursetur Guð blóm fyrirheita sinna til þess að gera ferð okkar ánægjulegri. En margir neita að safna saman þessum blómum og velja í stað þess þyrna og þistla. Þeir gráta og kveina við hvert skref á sama tíma og þeir gætu fagnað í Drottni vegna þess að hann hefur gert leiðina til himins svo ánægjulega. DL 340.3
Ef við lítum á fyrirheit Guðs finnum við huggun og von og fögnuð því að þau tala til okkar orð hins óendanlega. Til þess að meta þessi dýrlegu fyrirheit rétt ættum við að rannsaka þau vandlega og athuga hvert smáatriði. Hversu mikinn fögnuð mundi það færa inn í líf okkar og gæsku í lund okkar ef við gerðum þessi fyrirheit að okkar eigin! Á leið okkar til himins skulum við tala um blessanir þær sem er að finna á vegferð okkar. Þegar við hugsum um híbýlin sem Kristur er að búa fyrir okkur gleymum við hinum smávægilegu sorgarefnum sem verða á vegi okkar dag frá degi. Okkur virðist við anda að okkur andrúmslofti hins himneska lands sem við erum á leið til og við látum sefast og huggast... Við skulum heiðra Guð með því að vefa meira af Jesú og himninum inn í líf okkar. 68 DL 340.4
Óbrigðul fyrirheit Guðs munu varðveita hjarta ykkar í fullkomnum friði. 69 DL 340.5