Daglegt Líf
FYRSTU SIGRARNIR UNNIR Á HEIMILINU, 11. nóvember
Styrkst þú þá, son minn, í náðinni, sem fœst fyrir Krist Jesúm... Þú skalt og að þínu leyti illt þola eins og góður hermaður Krists Jesú. 2. Tím. 2, 1-3 DL 321.1
Í öllu því sem snertir framgang Guðs verks verða fyrstu sigrarnir að vera unnir í heimilislífinu. 26 DL 321.2
Þegar sleppir ögun heimilis og skóla verða allir að horfast í augu við sterkan aga lífsins. Það ætti að skýra fyrir hverju barni og hverju ungmenni hvernig taka má þessum aga skynsamlega. Satt er það að Guð elskar okkur, að hann vinnur að hamingju okkar og við hefðum aldrei kynnst þjáningu ef lögmáli hans hefði ávallt verið hlýtt. Samt er það engu að síður satt að í þessum heimi hlýtur hver maður sinn skerf af þjáningum, vandamálum og byrðum vegna syndarinnar. Við getum gert börnum og ungmennum gott allt lífið með því að kenna þeim að mæta þessum vandamálum og byrðum með djörfung. Þó að við eigum að sýna þeim samúð ættum við aldrei að ýta undir sjálfsmeðaumkun hjá þeim. Það sem þau þarfnast er það sem örvar og styrkir fremur en veikir. DL 321.3
Það ætti að kenna þeim að þessi heimur er ekki staður fyrir skrúðgöngu heldur fyrir stríð. Allir eru kallaðir til þess að þola erfiðleika sem góðir þegnar. Þeir eiga að vera styrkir og koma fram eins og karlmenni. Það ætti að kenna þeim að hið sanna próf á lundernið er að finna í fusleika til að bera byrðar, að taka erfitt hlutverk, að vinna verkið sem þarf að vinna þó að því fylgi enginn jarðnesk laun eða viðurkenning. 27 DL 321.4
Það er ekki hægt að leggja meiri bölvun á heimili en þá að leyfa ungmennum að fara sínar eigin leiðir. 28 DL 321.5
Sé einu sinni staðið í gegn freistingu mun slíkt gefa kraft til þess að standa aftur gegn henni af enn meiri festu. Hver nýr sigur sem unninn er yfir sjálfinu mun ryðja braut fyrir æðri og göfugri sigra. Hver sigur er sæði sáð til eilífs lífs. 29 DL 321.6