Daglegt Líf

261/366

SANNLEIKURINN UPPLÝSIR, 17. September

Að upplýsa sálarsjón yðar svo þið skiljið hver sú von er sem hann hefur kallaó yður til, hver rikdómur þeirrar dýrðar sem hann œtlar oss að erf a meðal hinna heilögu. Ef. 1, 18 DL 266.1

Öll sönn þekking og raunverulegur þroski eiga uppsprettu sína í þekkingunni á Guði. Þessi þekking opinberast hvert sem við snúum okkur á hinu líkamlega sviði, andlega eða vitsmunalega og í hverju sem við sjáum ef við sleppum skugga syndarinnar. Það er sama hvað við rannsökum í einlægum tilgangi að komast að sannleika. Við komumst ávallt í snertingu við hina ósýnilegu, voldugu vitsmunaveru sem vinnur í öllu og með tilstilli alls. Hugur mannsins kemst í samfélag við huga Guðs, hið dauðlega við hið óendanlega. Áhrif slíks samfélags á huga og sál eru meiri en hægt er að meta. DL 266.2

Í þessu samfélagi er að finna hina æðstu menntun. Það er leið Guðs til þroska. “Vingast þú við hann,” er boðskapur hans til mannkynsins. 37 DL 266.3

Er hann rannsakar og íhugar þau efni sem “englarnir þrá að skyggnast inn í,” getur hann haft félagsskap þeirra... Hann getur dvalið í þessum heimi í andrúmslofti himinsins og vakið hugsanir vonar og þrá eftir heilagleika í brjósti þeirra sem syrgja og verða fyrir freistingu. Við það kemst hann í nánara samfélag við hinn ósýnilega eins og sá sem í fyrndinni gekk með Guði og nálgaðist æ meir mörk hinnar eilífu veraldar þar til hlið hennar opnuðust og hann gekk inn. Þar mun hann ekki vera sem ókunnugur. Þar munu þær raddir sem heilsa honum vera raddir hinna heilögu sem voru samferðamenn hans hér á jörðu þó ósýnilegur væru — þær raddir sem hann hér lærði að þekkja og elska. Sá sem fyrir orð Guðs hefur lifað í samfélagi við himininn mun finnast sjálfur hann eiga heima í félagsskap himinsins. 38 DL 266.4

Þar sem hann er leiddur af “Anda sannleikans” mun hann verða leiddur inn í allan sannleikann... Hann mun verða dýrmætur í augsýn himinsins. 39 DL 266.5