Daglegt Líf

259/366

SANNLEIKURINN GÖFGAR, 15. September

Og nú fel ég yður Guði og orði náðar hans sem máttugt er að uppbyggja yður og gefa arfleið meö öllum þeim sem helgaðir eru. Post. 20, 32 DL 264.1

Hin dýrmæta trú sem kemur frá Guði veitir skapgerðinni styrk og göfgi. Þegar hugurinn er látinn dvelja við gæsku hans, náð og kærleika fæst æ skýrari skilningur á sannleikanum. Þráin eftir hreinleika hjartans og skýrleika hugans verður æðri og heilagri. Sálin sem dvelur í andrúmslofti heilagra hugsana ummyndast fyrir samfélagið við Guð við lestur orðs hans. Sannleikurinn er svo víðfeðmur, svo mikill, svo djúpur og víður að við missum sjónar á sjálfinu. Hjartað mýkist og er beygt til auðmýktar, vingjarnleika og kærleik. DL 264.2

Náttúrlegir hæfileikar vaxa fyrir hlýðni. Hugur nemandanna eflist, göfgast og er hafinn upp við lestur orðsins... Með því að eignast hreinan huga munu þeir verða styrkir í huga. Sérhver vitsmunalegur hæfileiki mun örvast. Þeir geta menntast svo og agast að allir sem koma inn á áhrifasvæði þeirra geta séð hvað maðurinn getur orðið og hvað hann getur gert þegar hann er í sambandi við Guð visku og máttar. 31 DL 264.3

Sannleikur Guðs niðurlægir aldrei þann sem veitir honum viðtöku. Áhrif sannleikans á þann sem tekur við honum mun stöðugt miða að því að hefja hann upp... DL 264.4

Þeir sem helgast fyrir sannleikann eru lifandi dæmi um kraft hans og fulltrúar hins upprisna Drottins. Trú Krists mun fága smekkinn, helga dómgreindina, hreinsa, göfga og hefja sálina upp og gera hinn kristna æ betur hæfan fyrir samfélag himneskra engla. 32 DL 264.5

Guð biður okkur að fylla huga okkar af háleitum hugsunum og hreinum... DL 264.6

Enginn sem hefur það hugarfar að meta kenningar Biblíunnar getur lesið svo mikið sem eina ritningargrein án þess að öðlast við það einhverja gagnlega hugsun. 33 DL 264.7