Daglegt Líf
SANNLEIKURINN HELGAR, 14. September
Helgaðu þá með sannleikanum: Þitt orð er sannleikur. Jóh. 17, 17 DL 263.1
Sannleikur Guðs á að helga sálina. “Nýtt hjarta mun ég gefa yður og nýjan anda mun ég leggja yður í brjóst.” Helgandi máttur sannleikans á að búa í sálinni og einkenna öll viðskipti okkar og á þar að vera stöðugt próf á hverja athöfn lífsins, einkum viðskipti okkar við samferðamennina. Hann á að ríkja á heimilum okkar og hafa þau áhrif að beygja líf og lund allra þeirra sem þar dvelja. 26 DL 263.2
Ég er stöðugt að leggja að þeim sem segjast trúa sannleikanum að þeir verði að iðka sannleikann. Þetta felur í sér helgun og helgun felur það í sér að skóla og þjálfa hvern hæfileika til þjónustu Drottins. 27 DL 263.3
Kennið börnum ykkar að elska sannleikann af því að hann er sannleikurinn og af því að þau eiga að helgast fyrir sannleikann og vera gerð hæf til að standast í dómi Guðs sem mun ákvarða hvort þau eru hæf til að takast á við hið æðra starf og verða meðlimir konungsfjölskyldunnar, börn hins himneska föður. 28 DL 263.4
Sannleikurinn, hinn dýrmæti sannleikur Guðs orðs, mun hafa helgandi áhrif á hjarta og lund. Það þarf að vinna verk fyrir okkur sjálf og börnin okkar. Hið náttúrlega hjarta er fullt af hatri gegn sannleikanum og Jesú. Börnin munu velja ranga leið fremur en rétta nema foreldrarnir geri það að æðstu skyldu sinni í lífinu að leiða fætur barnanna inn á veg réttlætisins. 29 DL 263.5
Verk helgunarinnar byrjar heima. Þeir sem eru kristnir menn heima munu vera kristnir menn í söfnuðinum og í heiminum. 30 DL 263.6