Daglegt Líf

225/366

VINNIÐ FYRIR BÖRNIN, 12. ágúst

En Jesús sagði: Leyfið börnunum og bannið þeim eigi að koma til mín því slíkra er himnaríki. Matt. 19, 14 DL 230.1

Hvar sem frelsarinn fór ávann góðleikinn sem skein út úr ásjónu hans og blíð og vingjarnleg framkoma honum kærleika og traust barna... DL 230.2

Móðir ein hafði ásamt barni sínu farið að heiman til að finna Jesú. A leið sinni sagði hún nágranna sínum frá erindi sínu og nágranni hennar vildi að Jesú blessaði börn hennar einnig. Þannig voru margar mæður saman komnar ásamt börnum sínum. Sum barnanna voru ekki hvítvoðungar lengur heldur komin á bernskuskeið og jafnvel á æskuár... En hann beið eftir að sjá hvernig lærisveinarnir kæmu fram við þau. Þegar hann sá þá senda mæðurnar í burtu og töldu að þeir væru að gera honum greiða sýndi hann þeim hvernig þeir fóru villir vega og sagði: “Leyfið börnunum og bannið þeim eigi að koma til mín því að slíkra er himnaríki.” Hann tók börnin í fang sér og lagði hendur yfir þau og veitti þeim þá blessun sem þau sóttust eftir. 24 DL 230.3

Jesús vill að jafnvel ung börn séu börn hans og tilheyri fjölskyldu hans. Þó þau kunni að vera ung geta þau sem börn og ungmenni verið hluti af fjölskyldu trúarinnar og átt dýrmæta reynslu með honum... Kristur vill gera þau að litlum trúboðum. Hægt er að breyta öllum hugsanagangi þeirra þannig að syndin verði ekki eftirsóknarverð heldur hati þau hana og fyrirlíti... Drottinn mun veita þessum börnum dýrmæta reynslu á trúboðssviði. 25 DL 230.4

Við getum leitt hundruð og þúsundir barna til Krists ef við viljum vinna fyrir þau. 26 DL 230.5

Það ætti að ala bömin þannig upp að þau hafi samúð með hinum öldruðu og hrjáðu og leitist við að draga úr þjáningum fátækra og niðurbeygðra. Það ætti að kenna þeim að vera iðin við trúboðsstörf og frá fyrstu tíð ætti að innræta þeim sjálfsafneitun og fórn öðrum til góðs og til framgangs málefnis Krists svo að þau geti orðið samstarfsmenn Guðs. 27 DL 230.6