Daglegt Líf
AÐ STARFA FYRIR FYRIRMENN, 13. ágúst
Og þegar hann var að tala við þá, sjá,þá kom forstöðumaður nokkur, laut honum og mœlti: dóttir mín er nýskilin við en kom þú og legg höndþína yfir hana, þá mun hún lifna. En Jesús stóð upp, for med honum svo og lœrisveinar hans. Matt. 9, 18. 19 DL 231.1
Hann (Kristur) starfaði fyrir alla sem vildu hlýða á orð hans — ekki aðeins tollheimtumenn og útburði mannlifsins heldur ríka og siðmenntaða farísea, ættgöfuga Gyðinga, hundraðshöfðingja og rómverskan tignarmann. 28 DL 231.2
Hærri stéttirnar hafa verið undarlega vanræktar. Í hærri stéttum mannfélagsins er að finna marga sem munu svara kalli sannleikans af því að hann er samkvæmur sjálfum sér, af því að hann ber á sér merki hins háleita eðlis fagnaðarerindisins. Það eru ekki fáir meðal hæfileikamanna sem þannig mundu vinnast málefni Guðs er munu hefjast handa af krafti í verki Drottins. 29 DL 231.3
Stjórnendur og stjórnmálamenn, menn sem eru í trúnaðarstöðum og valdastöðum, hugsandi menn og konur allra stétta beina athygli sinni að þeim atburðum sem eiga sér stað umhverfis þau. Þau veita athygli spennunni og eirðarleysinu sem birtist í samskiptum þjóðanna. Þau veita því athygli hvernig allt jarðneskt magnast og gera sér grein fyrir að eitthvað meira og ákveðnara er um það bil að eiga sér stað — að heimurinn er að komast á feykilega örlagaríkt augnablik. 30 DL 231.4
Við eigum ekki að gleyma... lögfræðingum, prestum, þingmönnum og dómurum en margir þeirra eru þrælar óhófsamra venja. Við eigum að láta einskis ófreistað að sýna þeim að það er þess virði að frelsa sálir þeirra, að það er þess virði að keppa eftir eilífu lífi. 31 DL 231.5
Guð getur gert kraftaverk fyrir hina mestu menn jarðarinnar... þegar þeir snúast til Krists munu margir þeirra verða verkfæri í hendi Guðs til þess að vinna fyrir aðra af eigin stétt... aðeins eilífðin sjálf mun sýna hvað framkvæmt hefur verið með þess konar starfi — hversu margar sálir sjúkar af efasemdum og þreyttar á heimshyggju og friðleysi hafa verið leiddar til læknisins mikla. 32 DL 231.6