Daglegt Líf

134/366

LOFTIÐ, SEM VIÐ ÖNDUM AÐ OKKUR, 13. maí

Hann sjálfur gefur öllu líf og andardrátt og sérhvað annað. (1866) Post. 17,25 DL 139.1

Loftið er ókeypis gjöf himinsins, ætluð . til að örva allt líkamskerfið. 54 DL 139.2

Lungun losa sig sífellt við úrgangsefni og það þarf stöðugt að veita þeim ferskt loft. 55 DL 139.3

Við erum háðari loftinu sem við öndum að okkur en fæðunni, sem við neytum. Karlar og konur, ungir og gamlir, sem þrá heilsu og vilja vera athafnasamir ættu að muna að þau geta ekki eignast þetta án góðrar blóðrásar. Þau ættu að ákveða að hreyfa sig eins mikið undir berum himni og þau geta, hver svo sem staða þeirra er eða áhugamál. Þau ættu að álíta það trúarlega skyldu sína að sigra það ásigkomulag heilsunnar, sem hefur haldið þeim innan dyra og svipt þau hreyfingu undir berum himni. 56 DL 139.4

Loftið, hin dýrmæta gjöf himins, sem allir geta eignast mun blessa ykkur með sínum styrkjandi áhrifum ef þið neitið því ekki inngöngu. Bjóðið það velkomið, ræktið með ykkur ást til þess og það mun reynast dýrmætt til að róa taugarnar... Hreint og ferskt loft hefur þau áhrif að blóðið rennur eðlilega um líkamann. Það hressir líkamann og stuðlar að því að gera hann sterkan og hraustan, jafnframt því sem áhrif þess á hugann finnast greinilega, veitir rósemi og stillingu. Það örvar matarlystina og gerir meltinguna fullkomnari og stuðlar að værum og sætum svefni. 57 DL 139.5

Hið hreina og styrkjandi loft himins er ókeypis gjöf Guðs til karla og kvenna og það er ómögulegt fyrir þau að vera glöð, hraust og hamingjusöm nema þau meti þessar ríkulegu gjafir, sem gefnar eru í örlæti, og leyfi þeim að uppfylla þann tilgang sem þeim var ætlaður. 58 DL 139.6

Hið frjálsa og hreina loft himins er ein af hinum ríkulegustu blessunum sem við njótum. 59 DL 139.7