Daglegt Líf
ÚTISTARF, 12. maí
Og Drottinn Guð plantaði aldingarð í Eden langt austur frá og setti þar manninn sem hann hafði myndað... Þá tók Drottinn Guð manninn og setti hann í aldingarðinn Eden til að yrkja hann og gœta hans. 1. Mós. 2, 8-15 DL 138.1
Adam og Evu var falin umsjá garðsins, “að yrkja hann og gæta hans.” Þó að þau væru auðug að öllu því sem eigandi alheimsins gat veitt áttu þau ekki að vera iðjulaus. Þeim var fengið nytsamt starf sem blessun til að styrkja líkamann, víkka út hugann og þroska lundernið. 48 DL 138.2
Menn og konur ættu að vinna á ökrum, aldinekrum og görðum. Það mun veita taugum og vöðvum hreysti og styrk... Það á að reyna jafnt á hvern hluta mannslíkamans. Þetta er nauðsynlegt fyrir samræmda starfsemi og þroska hvers hluta... Guð skóp taugar og vöðva svo að hægt væri að nota þau. Það er athafnaleysi mannslíkamans, sem hefur þjáningar og sjúkdóma í för með sér. 49 DL 138.3
Fleiri deyja vegna vöntunar á hreyfingu en vegna ofreynslu. Mjög margir ryðga fremur en slitna. Þeir sem venja sig við rétta hreyfingu undir beru lofti munu vanalega hafa góða og öfluga blóðrás. 50 DL 138.4
Morgunhreyfing, að ganga í frjálsu, hressandi lofti himins eða rækta blóm, litla ávexti og grænmeti, er nauðsynleg heilnæmri rás blóðsins. Það er hin öruggasta vörn gegn kvefi, hósta, blóðsókn til heila og lungna, nýrnabólgu, lifrarbólgu, lungnabólgu og hundraði annarra sjúkdóma. 51 DL 138.5
Farðu út og hreyfðu þig á hverjum degi jafnvel þó að vanrækja verði eitthvað innan húss. 52 DL 138.6
Því nær sem við komumst hinu upprunalega áformi Guðs þeim mun hagstæðari verður aðstaða okkat til að endurheimta og varðveita heilsuna. 53 DL 138.7