Daglegt Líf

60/366

GERVÖLL JÖRÐIN MUN LJÓMA, 28. febrúar

Eftir þetta sá ég annan engil stíga ofan af himni og hafði hann mikið vald og jörðin ljómaði af dýrð hans. Op. 18, 1 DL 65.1

Endir allra hluta er fyrir dyrum. Guð hefur áhrif á hvern þann hug, sem er opinn til að meðtaka áhrif Heilags anda. Hann sendir út boðbera sína til að flytja aðvörunina á hverjum stað. Guð er að prófa helgun safnaða sinna og fúsleika til að hlýða leiðsögn Andans. Þekkingin á að aukast. Boðberar himnanna munu sjást renna til og frá og leitast við á allan hugsanlegan hátt að aðvara fólkið um komandi dóm og kunngera gleðitíðindin um endurlausnina fyrir Jesúm Krist. Mælikvarða réttlætisins á að upphefja. Andi Guðs hefur áhrif á hjörtu mannanna og þeir sem svara áhrifum hans munu verða ljós í heiminum. Alls staðar sjást þeir ganga fram í að veita öðrum það ljós sem þeir hafa meðtekið líkt og þeir gerðu eftir úthellingu Andans á hvítasunnudaginn. Og þeir öðlast meira og meira af krafti Andans, er þeir láta ljós sitt skína. Jörðin ljómar af dýrð Drottins. 85 DL 65.2

Þessum boðskap mun ljúka með krafti og mætti er mun fara langt fram úr miðnæturópinu. Þjónar Guðs, gæddir krafti að ofan, með ásjónur sínar ljómandi, skínandi af heilagri helgun, gengu fram að kunngera boðskapinn frá himnum. 86 DL 65.3

Margir lofuðu Guð. Hinir sjúku voru læknaðir og önnur kraftaverk voru framkvæmd. Bænarandinn sást hvarvetna, líkt og fyrir hvítasunnudaginn mikla. Hundruð og þúsundir sáust heimsækja fjölskyldur og opna þeim orð Guðs. Kraftur Heilags anda sannfærði hjörtun og andi ósvikins afturhvarfs kom í ljós. Alls staðar opnuðust leiðir fyrir boðun sannleikans. Heimurinn virtist vera uppljómaður af himneskum áhrifum. 87 DL 65.4