Daglegt Líf

22/366

RÁÐGJAFI MINN OG LEIÐSÖGN, 21. Janúar

Þú munt leiða mig eftir ályktun þinni og síðan láta mig ná sœmd. Sálm. 73, 24 DL 27.1

Sá kristni vitnisburður, sem við þörfnumst, er ekki að finna í lífi manna, heldur í Biblíum okkar. Orð Guðs er ráðgjafi okkar því að það færir okkur fram öld eftir öld og ber óumbreytanleik sannleikans vitni. Ekki hefur eitt af hinum fornu vígjum orðs Guðs, er ætlað var sérstökum tímum, orðið úrelt. Hár aldur hefur ekki orðið neinum hluta Biblíunnar að aldurtila. Við í dag eigum að rannsaka alla liðna sögu fólks Guðs, svo að við getum lært af þeim reynslum sem sagt er frá. 52 DL 27.2

Menn ganga á bak orða sinna og reynast ótrúverðugir; en Guð breytist ekki. Orð hans mun standa óbreytt að eilífu. 53 DL 27.3

Gefið orðinu hina heiðruðu stöðu þess, sem leiðsögn á heimilinu. Það sé skoðað sem ráðgjafi í öllum erfiðleikum, mælikvarði sérhverrar framkvæmdar... Engin sál í fjölskyldunni getur búið við sanna velsæld, nema sannleikur Guðs, viska réttlætisins, sitji í forsæti. 54 DL 27.4

Við þurfum öll á leiðsögn að halda í gegn um hin mörgu erfiðu sund lífsins, rétt eins og sjómaðurinn þarfnast hafnsögumanns við skerjótta strönd eða upp ótryggt fljót... DL 27.5

Sjómaðurinn sem hefur yfir að ráða sjókorti og áttavita og vanrækir samt að nota þetta er ábyrgur fyrir að stofna lífi þeirra sem um borð eru í hættu. Skipið kann að týnast sökum vanrækslu hans. Við höfum leiðsögubók, orð Guðs, og við erum án afsökunar ef við týnum veginum til himna því að okkur hafa verið gefnar greinilegar leiðbeiningar. 55 DL 27.6

Biblían sýnir fullkominn staðal lyndiseinkunnarinnar. Hún er óskeikul leiðsögn undir öllum kringumstæðum lífsferðina á enda. 56 DL 27.7