Daglegt Líf

123/366

MAÐURINN SKAPAÐUR Í GUÐS MYND, 2. maí

Og Guð sagði: Vér viljum gjöra menn eftir vorri mynd, líka oss. 1. Mós. 1, 26 DL 128.1

Sköpun mannsins var krýningarathöfn sköpunarverks Guðs, gjörður eftir Guðs mynd og ætlað að vera eftirmynd Guðs... Maðurinn er Guði mjög kær vegna þess að hann var myndaður í hans eigin mynd. 3 DL 128.2

Er Adam kom frá hendi skaparans var hann tígulegur á vöxt og samsvaraði sér yndislega. Hann var meir en tvisvar sinnum haerri en menn sem nú lifa á jörðinni og var vel limaður. Andlitsdrættir hans voru fullkomnir og fallegir. Hann var hvorki hvítur né gugginn á hörund heldur rjóður og bar hraustlegt yfirbragð. Eva var ekki alveg eins há og Adam. Höfuð hennar náði örlítið yfir axlir hans. Hún var einnig tíguleg, samsvaraði sér fullkomlega og var mjög fögur. 4 DL 128.3

Þegar maðurinn kom frá hendi Guðs var hver hæfileiki hugar og líkama fullkominn, hann var algerlega gallalaus og þess vegna við fullkomna heilsu. 5 DL 128.4

Guð veitti manninum svo mikinn lífsþrótt að hann hefur staðist alla þá sjúkdóma sem mannkynið hefur leitt yfir sig vegna rangra venja og hefur haldið velli í sex þúsund ár... DL 128.5

Ef Adam hefði ekki við sköpunina verið veittur tuttugu sinnum meiri lífsþróttur en menn nú hafa mundi mannkynið vera útdautt vegna núverandi lífsvenja þess sem brjóta í bága við náttúrulögmálin. 6 DL 128.6

Adam og Eva voru sköpuð til að vera “ímynd og vegsemd Guðs” og höfðu þau hlotið hæfileika í samræmi við það. Þau höfðu svipmót skapara síns þar sem þau samsvöruðu sér og voru yndisleg í útliti, voru reglulega og fallega vaxin og bæði hreysti og ljósi gleði og vonar stafaði af ásjónu þeirra. 7 DL 128.7